Um Helga Áss Grétarsson
Ég er fæddur 18. febrúar 1977 og ólst upp í Breiðholtinu í Reykjavík. Síðan vorið 2022 hef ég verið kjörinn fulltrúi í borgarstjórn Reykjavíkur. Við eiginkonan búum í Norðurmýrinni í borginni og eigum samtals sex börn. Árið 1994 varð ég heimsmeistari 20 ára og yngri í opnum flokki í skák og hef tvisvar orðið Íslandsmeistari í skák, í seinna skiptið vorið 2024, Eins og margir aðrir skákmeistarar og stjórnmálamenn er ég lögfræðingur að mennt.