Birkimelur 1 - bensínstöðvarlóð umbreytt í fjölbýlishús
Á Birkimel 1 í vesturbæ Reykjavíkur er starfrækt bensínstöð og verslun:
Núna liggur fyrir deiliskipulagstillaga, sem borgarráð samþykkti að setja í auglýsingu hinn 15. maí síðastliðinn (sjá 5.dagskrárlið https://reykjavik.is/fundargerdir/borgarrad-fundur-nr-5782), og samkvæmt tillögunni á 42 íbúða fjölbýlishús með samtals 6 bílastæðum að rísa á reitnum:
Frestur til að koma athugasemdum við málið er til 22. júlí næstkomandi en það er ekki óvanalegt að setja umdeild skipulagsmál í auglýsingu yfir sumartímann þar eð slíkt er til þess fallið að minnka líkur á miklum fjölda athugasemda:
Gera má athugasemdir við þetta skipulagsmál á eftirfarandi slóð:
https://skipulagsgatt.is/issues/2025/684
Samgöngumat sem fylgir skipulagstillögunni er upplýsandi, hvet alla til að lesa það. Til að umorða á hvaða gildum það samgöngumat er unnið þá segir það:
- Þetta fjölbýlishús á að byggja fyrir fólk sem byggir sýn sína á borgarlífið á hinum eftirsóknarverða bíllausa lífstíl!
Einmitt, slíkar íbúðir á nýjum uppbyggingarreitum eru einmitt svo vinsælar, sjá fréttir í upphafi þessa mánaðar:
https://www.visir.is/g/20252721450d/-thetta-hefur-verid-sorg-leg-throun-
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/05/03/oseldar_ibudir_fyrir_milljardatugi/
Heilbrigð skynsemi er orðin svo sjaldgæf í skipulagsmálum að það er fátt sem kemur manni á óvart lengur.
Bensínstöðvardíll borgarinnar og Skeljungs frá árinu 2021
Uppbygging á Birkimel 1 byggir á bensínstöðvarsamningi Reykjavíkurborgar og Skeljungs frá sumrinu 2021, sjá umfjöllun um þá samninga í Kastljósi 6. maí 2024:
https://www.ruv.is/frettir/innlent/2024-05-06-umdeildir-samningar-um-bensinstodvalodir-412005
Vert er að hafa eftirfarandi upplýsingar í huga um bensínstöðvarlóðarsamning borgarinnar og Skeljungs frá 24. júní 2021 um Birkimel 1:
- Lóðarleigusamningur Reykjavíkurborgar við Skeljung um lóðina var gerður 24. febrúar 1995 og átti að gilda til 1. janúar 2045.
- Uppkaupsákvæði voru í þessum samningi frá 1995 en ekki endurnýjunarákvæði.
- Væntingar hvors aðila fyrir sig var að Reykjavíkurborg vildi fá skjóta og tiltekna húsnæðisuppbyggingu á lóðinni og Skeljungur myndi tryggja það með framlagningu deiliskipulagstillagna, byggða á ákveðnum forsendum.
- Skeljungur skyldi ekki greiða neitt sérstakt gjald til borgarinnar fyrir uppbyggingu á lóðinni.
- Hvor aðili um sig skyldi geta sagt samkomulaginu upp með þriggja mánaða fyrirvara.
Samkvæmt fréttaskýringu í Viðskiptablaði Morgunblaðisins 11. janúar 2023 hafði Skeljungur hf. (Skel Fjárfestingarfélag í dag) selt lóðina að Birkimel 1 til Reir Þróunar fyrir 400 milljónir króna en tekið var jafnframt fram að Reitir Þróun væri í jafnri eigu SKEL (gamla Skeljung) „og hjónanna í Reir Verk“. Sjá einnig hér:
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2023/01/11/bensinstodvalodir_seldar_a_5_9_milljarda/
Lokaorð
Ég mun síðar fjalla nánar um bensínstöðvarlóðamálið en það á rætur sínar að rekja til ákvörðunar borgarráðs Reykjavíkurborgar frá 24. júní 2021. Fyrirliggjandi deiliskipulagstillaga að Birkimel 1 er ein birtingarmynd þess samkomulags.
Það er með nokkrum ólíkindum að það sé talið til bóta að byggja svona fjölbýlishús á stað sem þessum, þar sem margar af helstu mennta- og menningarstofnunum landsins eru til húsa.
Ástæða er því að hvetja sem flesta að kynna sér deiliskipulagstillöguna sem fyrir liggur og gera við hana athugasemdir, telji þeir þörf á því. Minni aftur á skipulagsgáttina:
https://skipulagsgatt.is/issues/2025/684