Bætum skiptistöðina í Mjódd

Steinsnar frá mínu æskuheimili er stærsta stætóskiptistöð höfuðborgarsvæðisins, Mjóddin. Lengst af rak Strætó bs. skiptistöðina en árið 2015 tók Reykjavíkurborg, sem eigandi mannvirkisins, við rekstrinum.

Síðan þá hefur skiptistöðin hægt og sígandi drabbast niður. Sem dæmi er algengt að salerni stöðvarinnar séu lokuð, engin þjónusta sé í boði fyrir farþega, húsbúnaður sé rýr í roðinu sem og opnunartími stöðvarinnar. Mannvirkið er ansi stórt en öryggisgæsla er lítt sjáanleg.

Skiptistöðin í Mjódd, 27. mars 2025

Tillöguflutningur fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn hafa í gegnum tíðina lagt fram tillögur til að rekstur skiptistöðvarinnar í Mjódd komist í viðunandi horf. Þessar tillögur hafa ekki fengið brautargengi innan borgarkerfisins, sbr. t.d. afgreiðslur borgarráðs 8. júní 2017, borgarstjórnar 3. janúar 2023 og umhverfis- og skipulagsráðs 17. janúar 2024.

Einnig sendu fulltrúar flokksins fyrirspurn um málið á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 13. mars 2024 ásamt því að leggja fram tillögur um málið í því fagráði 19. mars 2025.

Ástandið á salernum skiptistöðvarinnar, ljósmynd tekin 27. mars 2025

Í byrjun apríl 2024 hafði ég frumkvæði að því sem fulltrúi í íbúaráði Breiðholts að ráðið myndi beina því til borgarráðs að það ráð grípi til fullnægjandi aðgerða til að bæta skiptistöðina. Íbúaráðið breytti tillögu minni og á fundi ráðsins 21. ágúst 2024 var svohljóðandi tillaga samþykkt samhljóða:

„Lagt er til að íbúaráð Breiðholts samþykki að beina því til borgarráðs að láta vinna tillögu að breytingum á skiptistöðinni í Mjódd og á nánasta umhverfi hennar þannig að aðstaða og umgjörð verði í senn aðlaðandi, aðgengileg, veiti viðskiptavinum, sérstaklega konum, meiri öryggistilfinningu og laði þannig að fleiri farþega. Þegar kostnaðarmetin tillaga liggur fyrir er gert ráð fyrir að verkefnið verði sett á fjárhagsáætlun og sá hlut framkvæmda sem tengjast öryggi og aðgengi verða sett í algeran forgang.“

Afdrif þessarar tillögu eins og annarra tillagna sem eiga rætur sínar til kjörinna fulltrúa Sjálfstæðisflokksins hafa verið að daga uppi í rangölum borgarkerfisins.

Sjá gólfefnið, mynd tekin 27. mars 2025

Breytinga er þörf í Mjóddinni

Skiptistöðin í Mjódd skiptir verulegu máli fyrir almenningssamgöngur, ekki bara fyrir höfuðborgarsvæðið heldur einnig fyrir landsbyggðina. Margar tillögur hafa verið lagðar fram um hvernig bæta megi rekstur skiptistöðvarinnar í Mjódd. Vinstri-meirihlutar í borgarstjórn hafa um langt árabil ítrekað hundsað slíkar tillögur. Á sama tíma hefur flætt fjármagn úr borgarsjóði til að sinna gæluverkefnum á borð við torgagerð í miðborg Reykjavíkur.

Breyta þarf þessari forgangsröð. Verja þarf takmörkuðu fjármagni borgarsjóðs í þágu grunnþjónustu. Skiptistöðin í Mjódd á að gegna veigamiklu hlutverki í slíkri grunnþjónustu.

Sé eitthvað að marka orðagjálfur þeirra, sem telja mikilvægt að bæta almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu, þá þarf að grípa núna til aðgerða svo bæta megi skiptistöðina í Mjódd.

[Önnur útgáfa af þessari grein var birt á visir.is hinn 1. apríl 2024]

Þar sem stóru tréin eru sést æskuheimili mitt Brúnastekkur 11 - sjá einnig ástand lóðarinnar