Velkomin á heimasíðu Helga Áss
Verið öll hjartanlega velkomin á heimasíðu mína, helgiass.is.
Hér verður fjallað um stjórnmál, skák og allt annað á milli himins og jarðar.
Harry Truman forseti Bandaríkjanna 1945-1952 sagði eitt sinn að ef þú vilt eignast vin í stjórnmálum fáðu þér þá hund.
Ég er nú meira fyrir ketti en á árinu 2023 missti fjölskyldan tvo ketti, Emmu, 19 ára, og Júní, 18 mánaða.
Í september 2023 kom Drúi í líf fjölskyldunnar og er hann okkur afar kær, enda einstaklega skemmtilegur köttur.