Fjölmiðlaumfjöllun um þéttingu byggðar í Breiðholti
Þriðjudaginn 8. apríl 2025 fór fram umræða í borgarstjórn Reykjavíkur um þéttingu byggðar í Breiðholti:
Með umræðunni um þetta efni fylgdi greinargerð sem finna má meðal annars hér:
https://reykjavik.is/sites/default/files/2025-04/umraeda_d_breidholt.pdf
Töluverð fjölmiðlaumfjöllun hefur síðan verið um málið, meðal annars var fín umfjöllun Morgunblaðsins um það á forsíðu blaðsins þriðjudaginn 8. apríl og svo inn í blaðinu sjálfu.
Aðrir miðlar fengu í kjölfarið áhuga á málinu, meðal annars mætti ég í viðtal í síðdegisútvarpi Rásar 2 þriðjudaginn 8. apríl:
Fréttastofa Stöðvar 2 fjallaði allítarlega um málið í kvöldfréttum 8. apríl og tók íbúa tali:
Morgunblaðið fylgdi málinu eftir og á forsíðu blaðsins miðvikudaginn 9. apríl var fjallað um þau ánægjulegu tíðindi að borgin hafði fallið frá áformum um að þétta byggð við Rangársel sem er í nágrenni við settjörnina í Seljahverfi.
Ástæða er til að geta þess að á borgarstjórnarfundi 1. apríl lagði borgarstjóri fram gagn sem varðaði húsnæðismál og í því skjali mátti finna töflu þar sem gert var ráð fyrir að 75 íbúðir myndu rísa við Rangársel. Sá liður skjalsins hefur síðan reynst vera einskonar „aprílgabb“.
Bæði Morgunblaðið og visir.is hafa í dag, 9. apríl, fjallað um það á netmiðlum sínum að hætt hafi verið við þessi áform í Rangárseli:
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/04/09/borgin_bakkar_i_breidholti/
- https://www.visir.is/g/20252712415d/haetta-vid-upp-byggingu-vid-tjornina-i-seljahverfi
Umræða um þéttingu byggðar í Breiðholti er rétt að byrja og það er góð byrjun að bakkað hefur verið út úr þéttingaráformum við settjörnina í Seljahverfi.