Torg eða grunnþjónusta? Mjóddin og Hlemmur Torg
Föstudagskvöldið 27. mars 2026 var útlit skiptistöðvarinnar í Mjódd með eftirfarandi hætti:



Reykjavíkurborg ber ábyrgð á rekstri skiptistöðvarinnar, meðal annars að þar sé fullnægjandi öryggisgæsla. Allar tillögur um aukna sýnilega öryggisgæslu á þessari stærstu skiptistöð landsins hafa verið svæfðar af hálfu meirihluta borgarstjórnar, undir forystu Samfylkingarinnar.
Hlemmur torg
Á meðan skiptistöðin í Mjódd er vanrækt hefur ekki vantað fjárfestingar af hálfu borgaryfirvalda í torgum í Miðborg Reykjavíkur.
Sem dæmi hefur tæplega 1.500 milljónum króna verið varið í framkvæmdir við Hlemmur torg, frá árinu 2017 til og með 30. september 2025.
Þessar kostnaðartölur eru fengnar með því að skoða verkstöðuskýrslur borgarinnar á hverjum tíma.
Varlega áætlað má reikna með að kostnaðurinn við þessa framkvæmd í dag, á föstu verðlagi í mars 2026, sé um það bil tveir milljarðar króna.
Borgarráð ákvað svo að gefa í og bæta við framkvæmdaþáttum við torgið, samanber 4. dagskrárlið fundargerðar borgarráðs frá lok febrúar 2026:
https://reykjavik.is/fundargerdir/borgarrad-fundur-nr-5815
Sem sagt, samþykkt var að fara í viðbótarframkvæmdir við Hlemmur Torg sem áætlað er að kosti um 1.200 milljónir króna, þar af sé beinn hlutur borgarinnar hálfur milljarður króna.
Nokkrar myndir af fyrirhugaðri framkvæmd á Hlemmur Torg:


Kjarni máls
Kjósendur í borgarstjórnarkosningunum Reykjavík í vor hafa val. Vilja þeir halda áfram á braut bruðls og óráðsíu eða vilja þeir að fjármunum og orku sé varið í að verja grunnþjónustu?
Skiptir meira máli að eyða milljörðum króna í torg í Miðborg Reykjavíkur eða verja grunnþjónustu á borð við þá sem er í Mjódd í Breiðholti?
Að strætófarþegar séu öruggir á stærstu skiptistöð landsins og geti liðið þar vel?
Eina leiðin til að tryggja breytingar á stjórn Reykjavíkurborgar er að ljá Miðflokknum atkvæði sitt, ellegar mun heilaþvottastöðin í Ráðhúsi Reykjavík halda áfram að malla í þágu dellumála vinstri-meirihlutans í borgarstjórn.
