Eftirminnilegasta skákin við Friðrik rifjuð upp

Ljósmynd birt í Morgunblaðinu 24. desember 2002, bls. 44, sjá líka hlekk: Jóhann og Helgi sigruðu á Jólaskákmóti...

Útför stórmeistarans Friðriks Ólafssonar fór fram í gær, 14. apríl 2025, frá Hallgrímskirkju. Ferill Friðriks var einstaklega glæsilegur og farsæll. Hann varð stórmeistari í skák árið 1958 og komst í áskorendamót heimsmeistarakeppninnar árið 1959. Þar tefldu átta skákmenn svo að Friðrik var á meðal níu bestu skákmanna heims á þeim tíma. Jóhann Hjartarson náði jafn langt í heimsmeistarakeppninni árið 1989 þegar hann tefldi áskorendaeinvígi við Anatoly Karpov.

Þessir tveir, Friðrik Ólafsson og Jóhann Hjartarson, eru bestu skákmenn Íslands í sögu greinarinnar hingað til. Mín skoðun.

Ég ritaði minningargrein um Friðrik sem birt var í Morgunblaðinu sama dag og útför hans fór fram. Hyggst ekki endurtaka hana hér. Allir sem komust í kynni við Friðrik áttuðu sig á hversu ljúfur og kurteis maður hann var. Sem skákmaður var Friðrik afar hugmyndaríkur og sókndjarfur. Margar perlur eru til úr ferli Friðriks, hér er ein staða:

Friðrik gegn Najdorf, ÓL Moskva 1956

Friðrik lék hér 40. e4-e5 og svartur gafst upp. Lokastaðan er ef til vill ekki spennandi en það sem var merkilegt við skákina var að kóngur hvítur hreyfði sig ekki frá upphafsreitnum, hann stóð á e1 allan tímann! Ég minntist á þessa skák í pistli mínum frá árinu 2019:

Kjarni greinar minnar frá árinu 2019 fjallaði um það að það getur verið hagnýtt í skák að bíða með það í lengstu lög að ákveða hvar kóngurinn eigi að vera - getur ruglað andstæðinginn í ríminu. Þetta atriði í skák gengur í bága við þá meginreglu að koma sínum eiginn kóngi í öruggt skjól, svo sem með því að hróka á sama væng og andstæðingurinn.

Skák Friðriks gegn Najdorf frá ólympíumótinu í Moskvu árið 1956 er lærdómsríkt dæmi um þessa undantekningu frá meginreglunni.

Meistaraverkið gegn Mikhael Tal

‍Í útför Friðriks var þekktasta skákbrella hans stillt upp og sett ofan á kistu hans. Þetta var að sjálfsögðu skák Friðriks gegn heimsmeistaranum fyrrverandi, Mikhael Tal, tefld í Las Palmas á Kanaríeyjum árið 1975:

Svartur á leik, Tal gegn Friðriki

Hér lék Friðrik 25...Dg5!! og Tal gafst upp enda mát eftir 26. Dxg5 Hxe1# og hrókurinn á e7 fellur í valinn eftir ýmsa aðra leiki, t.d. eftir 26. He5 Dxe5.

Friðrik vann ansi marga heimsmeistara í skák, fyrir utan Tal, einnig þá Bobby Fischer, Tigran Petrosjan, Vassily Smyslov og Anatoly Karpov.

Sigur Friðriks gegn Karpov var óvenjulegur, hann gegndi þá embætti forseta FIDE, alþjóðaskáksambandsins en Karpov var ríkjandi heimsmeistari í skák.

Magnað afrek!

Eftirminnilegasta skákin við Friðrik

Við Friðrik tefldum bara eina kappskák, sú varð stutt, jafntefli samið eftir fáeina leiki í lokaumferð afmælismóts Friðriks Ólafssonar árið 1995, haldið í Þjóðarbóklöðunni. Við telfdum samt sem áður fáeinar hraðskákir og eina atskák. Skor mitt gegn Friðriki var allgott en hann var að sjálfsögðu kominn á virðulegan aldur þegar við tefldum saman.

GENS UNA SUMUS, oft er kátt á meðal skákmanna, Morgunblaðið 21. desember 2002

Eftirminnilegasta skákin mín gegn Friðrik var á hraðskákmóti, svokölluðu Jólaskákmóti Búnaðarbankans sem haldið var laugardaginn 21. desember 2002. Ástæðan fyrir því að skákin hefur verið mér minnisstæð eru þær tilfinningar sem eru tengdar henni. Ég hafði svart og ákvað frá byrjun að tefla öruggt, allt að því passíft. Bíða færis en það hentar oft gegn sóknarskákmönnum. Friðrik hafði frumkvæðið framan af en ég hélt stöðunni saman. Að lokum lék Friðrik af sér og ég náði gagnsókn og innbyrti vinninginn.

Ein ástæðan fyrir því hversu sigurinn í þessari hraðskák var eftirminnilegur var sú að við lok skákarinnar skein vel í keppnismanninn Friðrik, hann var afar svekktur og lét það skýrlega í ljós. Sem sagt, það gat alveg fokið í þennan mikla öðling.

Fyrir mig persónulega þykir mér vænt um þessa minningu vegna þess að Friðrik, þessi mikla þjóðhetja, var mennskur.

Það er mennskan í öllum einstaklingum sem gerir lífið áhugavert. Enginn er fullkominn. Það á einnig við um þjóðhetjur.

Minning Friðriks Ólafssonar mun hins vegar alltaf lifa á meðan skák verður tefld á Íslandi. Án hans framlags hefði svo margt annað verið ómögulegt.

Takk Friðrik fyrir samfylgdina og fyrir þitt ómetanlega framlag til framþróunar skáklistarinnar á Íslandi sem og í heiminum.