Erindi Miðflokksins er mikilvægt

Miðflokkurinn veitir mörgu hugrökku fólki skjól sem vill geta tjáð hug sinn um hluti sem eru erfiðir í okkar samfélagi og ganga í berhögg við trumbuslátt hinnar pólitískt rétthugsandi valdaelítu.

Sem dæmi, það er nærtækt að verja landamæri landsins okkar betur en gert hefur verið og það er eðlileg krafa að íslenska fánanum sé gert hátt undir höfði.

Það á ekki að krefjast hugrekkis að vera stoltur af Íslandi, sögu þjóðarinnar og menningu hennar.

Með eðlilegu þjóðarstolti er á engan hátt dregið úr mikilvægi þess að skapa tækifæri fyrir fólk sem kemur frá öðrum menningarheimum og hefur lagalegan rétt á að búa hér á landi.

Hver og einn á að geta leitað lífshamingjunnar á eigin forsendum, hvaðan svo sem viðkomandi kemur.

Ónotin í garð Miðflokksins

Vinsælt er í sumum valdamiklum kreðsum að tala illa um Miðflokkinn. Sem dæmi hefur síðustu daga forframað fólk í Viðreisn reynt að gera Miðflokkinn samsekan við dólgslegt athæfi áhorfanda á handboltaleik í Vestmannaeyjum:

https://www.visir.is/g/20262879953d/-og-nei-snorri-masson-thu-ert-ekki-fornarlambid-her-

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-05-07-hanna-katrin-gagnrynir-studningsmenn-ibv-og-beinir-spjotum-ad-midflokknum-474515

Svona lágkúrulegur málflutningur ætti með réttu að hitta viðkomandi forkólf Viðreisnar sjálfan fyrir.

Enginn stendur fyrir því í íslenskum stjórnmálum að leikmaður í íþróttaleik verði fyrir persónulegu níði áhorfanda vegna útlits, stöðu, kynhneigðar eða á öðrum álíka forsendum.

Borgarstjórn Reykjavíkur og borgarlínan

Miðflokkurinn hefur aldrei komið að stjórn Reykjavíkurborgar í krafti meirihluta en það hefur til dæmis Viðreisn gert, á árunum 2018–2025.

Á þeim árum var samið um borgarlínuverkefnið, fyrst haustið 2019 og svo endursamið haustið 2024. Miðflokkurinn kom ekki nálægt þeirri samningsgerð.

Forsvarsmenn Miðflokksins hafa frá upphafi talað fyrir öðrum lausnum, enda hefur þetta verkefni kostað skattgreiðendur nú þegar alltof mikið og sá kostnaður mun bara aukast á meðan ávinningurinn er í besta falli óljós.

Með öðrum orðum, spilafíkill sem fer með eina milljón króna með sér í spilavítið á ekki að halda áfram að spila gegn bankanum þótt hann hafi eingöngu tapað 300 þúsund krónum. Ástæðulaust er fyrir hann að henda góðum peningum á eftir slæmum.

Það sama á við um borgarlínuverkefnið.

Framboð Miðflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar

Erindi Miðflokksins í borgarstjórn er brýnt, meðal annars vegna þess að menningin sem hefur þrifist innan Ráðhúss Reykjavíkur er ekki heilbrigð.

Kostnaðarvitundin við stjórn borgarinnar er takmörkuð.

Oddviti Miðflokksins er hæfasti frambjóðandinn í borgarstjórnarkosningunum til að breyta þessum kúltúr.