Skrýtin skrúfa í skoðanakönnunum

Frá upphafi árs 2025 hafa verið sviptingar í skoðanakönnunum á fylgi stjórnmálaflokka í borgarstjórn. Sú saga er merkileg fyrir ýmsa hluta sakir og af henni dreg ég eftirfarandi þrjár ályktanir:

Í fyrsta lagi er ástæða til að efast um trúverðugleika skoðanakannana um fylgi stjórnmálaflokka í borgarstjórn ef ekki liggja fyrir bæði upplýsingar og staðfestar heimildir um hvenær skoðanakönnunin var gerð, hver var fjöldi þeirra sem var spurður og svo framvegis. Dæmi um skoðanakannanir um fylgi stjórnmálaflokka í borgarstjórn sem skortir trúverðugleika eru þær sem fjölmiðlar gerðu grein fyrir í byrjun desember 2025 og í ársbyrjun 2026.

Mín skoðun er sú að trúverðugleiki skoðanakannana frá Maskínu, um fylgi stjórnmálaflokka í borgarstjórn, hafi laskast, sjá nánar undir lok greinarinnar.

Í öðru lagi er þörf á að rýna með gagnrýnum hætti með hvaða hætti fjölmiðlar upplýsa um helstu niðurstöður skoðanakannana. Þannig vekur furðu að fréttaflutningur föstudaginn 27. febrúar 2026 af skoðanakönnun Maskínu í febrúar 2026 hafi ekki einblínt á meint fylgishrap Sjálfstæðisflokksins, það er, úr um og yfir 30% niður í 22,7%.

Mótsagnirnar í fréttaflutningi af síðastnefndu skoðanakönnuninni eru augljósar, sjá nánar undir lok greinarinnar.

Í þriðja lagi ætti sagan af þessum skoðanakönnunum að vera áminning til þátttakenda í stjórnmálum að skoðanakannanir séu ótraustar vörður til að marka veginn áfram.

Almannahagur verður ekki varinn með útkomum á fylgi stjórnmálaflokka í skoðanakönnunum.

Meira máli skiptir að hafa trúverðuga stjórnmálastefnu og öflugt fólk til að fylgja þeirri stefnu eftir.

Förum núna í að rekja sögu áðurnefndra skoðanakannana um fylgi flokka í borgarstjórn, fyrst helstu skoðanakannanir frá því í fyrra, almanaksárið 2025, og svo á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs.

Skoðanakannanir á almanaksárinu 2025

Í byrjun febrúar í fyrra birti Viðskiptablaðið niðurstöður skoðanakönnunar sem Gallup gerði dagana 13.-31. janúar 2025:

Sjá https://vb.is/frettir/gallup-sjalfstaedisflokkurinn-eykur-fylgid-um-101/.

Þarna var birt fyrsta skoðanakönnunin á yfirstandandi kjörtímabili sem gaf til kynna að Sjálfstæðisflokkurinn yki fylgi sitt verulega og væri stærsti flokkurinn í borgarstjórn en kjörfylgi flokksins vorið 2022 var 24,5%.

Fylgi Miðflokksins í janúar 2025 var 6,6% samkvæmt þessari skoðanakönnun en mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan.

Fylgiskannanir fram eftir ári 2025 gáfu til kynna að Sjálfstæðisflokkur og Samfylking væru að skiptast á að vera stærstu flokkarnir í borgarstjórn. Í könnun fyrir DV sem Maskína gerði dagana 20.-30. júní 2025 var fylgi Sjálfstæðisflokksins 25,5% en Samfylkingarinnar 29,4% og í könnun sama fyrirtækis sem gerð var dagana 18.-25. ágúst var fylgi Sjálfstæðisflokksins 29,2% og Samfylkingarinnar 25%:

Maskína skoðanakannir fylgi stjórnmálaflokka í borgarstjórn, birt á mbl.is 26. ágúst 2025

Sjá einnig:

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/08/26/sjalfstaedisflokkurinn_maelist_staerstur_i_borginni/

https://www.dv.is/frettir/2025/07/04/miklar-sviptingar-nyrri-borgarstjornarkonnun-samfylking-staersti-flokkurinn-sjalfstaedisflokkurinn-hrapar/

Um haustið 2025 var haldið áfram að mæla fylgi stjórnmálaflokkana í borgarstjórn en samkvæmt könnun Gallups, framkvæmd dagana 15. september til 12. október 2025, og gerð fyrir Viðskiptablaðið, var fylgi Sjálfstæðisflokksins 32,1% og Samfylkingin hafði 28,3% fylgi, sjá https://vb.is/frettir/meirihlutinn-fallinn-/.

Samkvæmt frétt á visir.is, frá 2. desember 2025, var Sjálfstæðisflokkurinn með 31% fylgi og Samfylkingin með 25,5%:

Heimild: visir.is, 2. desember 2025

Sjá einnig: https://www.visir.is/g/20252811685d/ny-konnun-synir-meiri-hlutann-fallinn-i-borginni

Í ársbyrjun 2026 var farið í að birta fréttir um niðurstöður skoðanakönnunar sem Gallup á að hafa sinnt í desember 2025:

Heimild: Morgunblaðið 5. janúar 2026

Sjá líka:

https://www.visir.is/g/20262824065d/sjalf-staedis-menn-sveiflast-upp-en-jafnadar-menn-dala-i-reykja-vik

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2026/01/03/sjalfstaedisflokkurinn_a_storsiglingu/

Heimild: visir.is 3. janúar 2026

Skoðanakannanir í janúar og febrúar 2026

Viðskiptablaðið birti niðurstöður könnunar í byrjun febrúar sem Gallup gerði fyrir blaðið og var framkvæmd á tímabilinu 5.-31. janúar 2026:

Heimild: Viðskiptablaðið 3. febrúar 2026

Sjá einnig:

https://vb.is/frettir/stal-i-stal-i-borginni-/

https://www.visir.is/g/20262838487d/tveggja-turna-tal-i-reykja-vik

Samkvæmt umfjöllun Viðskiptablaðsins frá 3. febrúar 2026 var Sjálfstæðisflokkurinn með 30,8% í desember 2025, sem er allt önnur og lægri tala en sett var fram í byrjun ársins 2026.

Misræmi af þessum toga dregur úr trúverðugleika upplýsinga sem fjölmiðlar setja fram um niðurstöður skoðanakannana.

Þetta misræmi er enn augljósara við birtingu skoðanakönnunar sem birt var opinberlega 27. febrúar 2026:

Heimild: visir.is 27. febrúar 2026

Sjá https://www.visir.is/g/20262849099d/samfylking-staerst-en-sjalfstaedisflokkur-skammt-undan og þar má einnig sjá neðangreint skjáskot:

Heimild: visir.is 27. febrúar 2026, borgarviti Maskínu

Trúverðugleiki skoðanakannana Maskínu hlýtur að laskast með birtingu þessara gagna þar eð í desember 2025 voru fluttar fréttir í fjölmiðlum, að á grundvelli skoðanakannana Maskínu, væri fylgi Sjálfstæðisflokksins í borginni 31% en samkvæmt þessu var fylgið í raun og veru 25%.

Umfjöllun fjölmiðla um þróun fylgis stjórnmálaflokkana í höfuðborginni föstudaginn 27. febrúar var einnig stórundarleg.

Sem dæmi, ef það var rétt eftir haft á liðnum mánuðum að fylgi Sjálfstæðisflokksins væri vel yfir 30%, hvers vegna var það ekki aðalfréttin í gær að fylgi flokksins væri komið niður í 22,7%?

Í stað þessarar augljósu stórfréttar var áherslan lögð á allt önnur atriði:

https://www.ruv.is/frettir/innlent/2026-02-27-samfylkingin-og-sjalfstaedisflokkur-gefa-eftir-i-borginni-468121

https://www.visir.is/k/cfb600b1-d47d-4d74-a116-2a0def4aaa81-1772219762796/vaeri-storsigur-ad-na-thrjatiu-prosentum

https://www.visir.is/g/20262849099d/samfylking-staerst-en-sjalfstaedisflokkur-skammt-undan

https://www.dv.is/frettir/2026/2/27/konnun-maskinu-samfylkingin-staerst-borginni-vinstrid-faer-2-fulltrua/

Sem pólitískur áttaviti geta skoðanakannanir villt fólk af leið

Skoðanakannanir um fylgi flokka geta leitt þátttakendur í stjórnmálum á villigötur. Fréttir um skoðanakannanir ber að skoða með gagnrýnum hætti. Það eru því stefnumálin og fólkið sem á að fylgja stefnumálunum eftir sem ættu með réttu að skipta mestu máli í stjórnmálum, ekki hverfular skoðanakannanir.

Eigi að síður, það eru spennandi og skemmtilegir tímar framundan, stutt í borgarstjórnarkosningarnar hinn 16. maí næstkomandi!