Upprifjun - landsfundur Sjálfstæðisflokksins 2022
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins var haldinn dagana 28. febrúar- 2. mars 2025. Líkt og í nóvember 2022 var fundurinn haldinn í Laugardalshöll.
Fyrir fundinn árið 2022 bauð ég mig fram í embætti ritara Sjálfstæðisflokksins, þá nýbyrjaður í stjórnmálum.
Hvers vegna bauð ég mig fram til að sinna innri málefnum Sjálfstæðisflokksins, sjálfur nýgræðingurinn í stjórnmálum? Stutta svarið er að ég taldi að í Sjálfstæðisflokknum væri mikill mannauður en að hann væri ekki nýttur eins og best væri á kosið. Nauðsynlegt væri að bæta félags- og flokksstarfið með margvíslegum hætti, meðal annars með því að stórefla upplýsingamiðlun af hálfu flokksins. Vankantarnir í innra starfi flokksins væru augljósir og þá þyrfti að laga.
Þessi atriði skýrði ég nánar í framboðsræðu minni á landsfundinum en einnig í eftirfarandi greinum:
„Verum stolt af Sjálfstæðisflokknum“. Morgunblaðið, 23. september 2022;
„Að taka í handbremsuna“. Visir.is, 24. september 2022;
„Látum hendur standa fram úr ermum“. Morgunblaðið, 6. október 2022;
„Fólkið í flokknum“. Visir.is, 31. október 2022;
„Sjálfstæðisflokkurinn: Stoltari, sterkari og stærri“. Morgunblaðið, 3. nóvember 2022.
Kjarnann í þessum greinum má draga fram með lokaorðum í greininni sem birt var á visir.is hinn 24. september 2022:
„...mitt mat er að óbreyttu haldi fylgi Sjálfstæðisflokksins áfram að hnigna. Fyrir því eru engin knýjandi rök. Mitt framboð til ritara flokksins snýst öðrum þræði um að benda á þá þörf að flokkurinn grípi í handbremsuna og efni til ærlegra skoðanaskipta í því skyni að efla fylgi sitt. Með réttum viðbrögðum núna er nefnilega hægt að snúa vörn í sókn.“