Fundur um þéttingu byggðar í Breiðholti

Í kjölfar uppbyggingar vöruhúss við Álfabakka 2a hafa skipulagsmál í Breiðholti vakið athygli íbúa.

Við það hafa spurningar vaknað eins og hvaða fleiri þróunarreitir séu á döfinni, það er hver er staðan og hvert stefnum við?

Í því skyni að varpa ljósi á spurningar af þessu tagi verður haldinn opinn fundur um þéttingu byggðar í hverfinu mánudaginn 28. apríl frá kl. 17:00-19:00 að Álfabakka 14a, Sjálfstæðissalnum, þriðja hæð.

Sem varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og fundarboðandi mun ég hefja fundinn á að veita yfirlit yfir þau áform sem borgin hefur uppi við að þétta byggð í Breiðholti. Í framhaldi af því mun Páll Jakob Líndal, dr. í umhverfissálfræði, halda tölu út frá sinni fræðigrein. Í samtali okkar á milli hefur Páll lofað skemmtilegri framsögu sem hann hefur töluverða reynslu af að flytja. Þau almennu atriði sem hann mun koma á framfæri mun hann svo beita við að lýsa því sem er að eiga sér stað í Breiðholti.

Jórunn Pála Jónasdóttir lögmaður mun svo stýra fundinum af festu og röggsemi.

Yfirlit yfir áform um þéttingu byggðar í Breiðholti

‍Út frá sögu Breiðholts og skipulagsforsendum hverfisins má skipta því í þrennt:

Skipting Breiðholts, Neðra-Breiðholt, Seljahverfi og Efra-Breiðholt

‍Áform um þéttingu byggðar í Breiðholti ganga lengst í Neðra-Breiðholti:

Þéttingaráform í Seljahverfi eru svohljóðandi:

Uppbyggingaráform í Seljahverfi

‍Í Efra-Breiðholti eru uppbyggingaráformin svohljóðandi:

Uppbyggingaráform í Efra-Breiðholti

Hver er þá heildarmyndin?

‍Þegar á heildina er litið eru þéttingaráformin í Breiðholti svohljóðandi:

Þétting byggðar í Breiðholti, heildarmyndin

‍Ábendingar um heimildir

Frá því að fjallað var um þéttingu byggðar í Breiðholti á fundi borgarstjórnar 8. apríl síðastliðinn þá hafa nýjar upplýsingar komið fram um þéttingaráformin í Breiðholtinu, sérstaklega varðandi uppbyggingu í Norður-Mjódd og á Suðurhólum. Sjá svohljóðandi texta úr fundargerð fundar umhverfis- og skipulagsráðs 9. apríl síðastliðinn:

„Fram fer kynning á  fyrirspurn Klasa ehf., dags. 26. febrúar 2025, ásamt drögum að greinargerð, dags. 20. febrúar 2025, um nýtt deiliskipulag fyrir Norður Mjódd vegna lóðanna nr. 4-6 við Stekkjarbakka og 7 við Álfabakka þar sem gert er ráð fyrir nýjum íbúðum, dvalarsvæðum, verslun og þjónustu og tekur tillagan tillit til framtíðarsýnar vegna legu Borgarlínu og Borgarlínustöðvar.“

Með þessum 11. dagskrárlið fylgdi kynning og drög að deiliskipulagstillögu

‍Á sama fundi umhverfis- og skipulagsráðs, 4. dagskrárliður, var fjallað um uppbyggingu á Suðurhólum.(PDF Skrá)

Heildarmat

Aðalatriðið við allar þessar upplýsingar er að ætlunin er að þétta verulega byggð í Breiðholti.