Ivantsjúk og þrautin sem Davíð Oddsson lagði fyrir hann

Ljósmynd: Hraðskák 1991, Heimsbikarmótið, 154 útg., bls. 210

Sunnudaginn 6. apríl fer fram úrslitaeinvígið á netskákmótinu Síminn Invitational. Stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson og Vignir Vatnar Stefánsson tefla til úrslita og verður um tíu skáka einvígi að ræða. Vignir er sigurstranglegri enda töluvert stigahærri en Hannes ásamt því að vera í mun meiri æfingu í að tefla nethraðskákir. Hingað til á mótinu hefur taflmennska Vignis einnig verið meira sannfærandi en taflmennska Hannesar. Allt getur þó gerst.

Teflt verður í Arena að Smáratorgi 3 og opnar húsið um og upp úr kl. 17:00 en útsendingin frá einvíginu hefst kl. 18:00.

Einn besti skákmaður skáksögunnar, sem ekki hefur náð því að verða heimsmeistari, Vasilí Ivantsjúk frá Úkraínu, mun væntanlega mæta á svæðið og verður gaman fyrir mig sem veislustjóra að fá að spyrja hann spjörunum úr.

Skákáhugamenn á Íslandi ættu ekki að missa af því!

Heimsbikarmót Flugleiða haustið 1991

Ég var 14 ára haustið 1991 þegar margir af sterkustu skákmönnum heims komu hingað til lands og tóku þátt í heimsbikarmóti. Jóhann Þórir Jónsson gaf út tímaritið Hrað-skák á meðan mótinu stóð og er það núna aðgengilegt á timarit.is, sjá t.d. https://timarit.is/page/8188103#page/n0/mode/2up.

Rússinn Anatoly Karpov og áðurnefndur Vasilí Ivantsjúk urðu jafnir og efstir á mótinu, með 10 1/2 vinning af 15 mögulegum. Karpov var heimsmeistari í skák um langt árabil, meðal annars á tímabilinu 1975-1985. Einhver mergjaðasti skákmaður sem skáksagan hefur augum litið.

Hverju sem því líður þá var í gömlu Rúgbrauðsgerðinni í Borgartúni haldið lokahóf sunnudaginn 13. október 1991  þar sem þáverandi forsætisráðherra, Davíð Oddsson, hélt áhugaverða tölu og lagði svo eftirfarandi skákþraut fyrir helstu keppendur mótsins:

Hvítur mátar í 3 leikjum

Hér má sjá tvær ljósmyndir sem Jóhann Þórir Jónsson hefur sjálfsagt tekið og sýnir með hvaða hætti Davíð fékk meðal annars Ivantsjúk til að grúfa sig yfir þessari skákþraut:

Ivantsjúk að pæla, ljósmynd Hraðskák, 154, bls. 210
Ivantsjúk að ræða við Seirawan, Hraðskák 1991

Ivantsjúk lifir fyrir skákina en hann er nýorðinn 56 ára. Á EM einstaklinga í opnum flokki í Petrovac í Svartfjallalandi í nóvember 2024 fékk ég að njóta þess heiðurs að tefla við hliðina á þessari lifandi goðsögn:

Tvær gamlar skákkempur, önnur þó mun betri en hin!

En hver er lausn þrautarinnar? Fyrst verð ég þó að upplýsa að þrautin er eftir íslenskan skákmann frá Akureyri og var birt fyrst árið 1925 (https://timarit.is/page/5404822#page/n29/mode/2up):

Halldór Arnórsson Skakbladet, 1925, hvítur mátar í þrem leikjum

Sem sagt, lausnin er eftirfarandi:

1. Re5!! og svartur er óverjandi mát í tveim leikjum, sem dæmi eftir 1...Kxe5 2. Db1!! d4 3. Df5 mát. Það sama á við eftir 1...d4 2. Rc3+ Kf4 3. Rd5 mát.

Svartur er óverjandi mát í tveim leikjum!