Skákminningar frá maí 2025
Opna Íslandsmótið í skák - Icelandic Open fer fram á Blönduósi dagana 15.-21. júní næstkomandi, sjá nánar á:
https://skak.is/2025/05/30/opna-islandsmotid-i-skak-icelandic-open-forsetinn-maetir/
Ég mun ekki reyna að verja Íslandsmeistaratitil minn frá 2024 þar eð í stað skákævintýra hefur athygli mín á þessu ári beinst að borgarmálunum.
Maí 2025 verður síðasti heili almanaksmánuðurinn sem ég ber Íslandsmeistaratitilinn, ein mont-selfie:

Ólíkt sumum öðrum mánuðum ársins þá tefldi ég aðeins í maí. Á annað hundruð keppendur tóku þátt í Sumarskákmóti Fjölnis sem fór fram 8. maí síðastliðinn en mótið var haldið í Rimaskóla og er ætlað börnum og ungmennum á grunnskólaaldri. Eins og ég hef gert árlega síðan árið 2022 tefldi ég fjöltefli við ákveðinn fjölda krakka áður en mótið var formlega sett, sjá nánar hér:
https://skak.is/2025/05/09/a-annad-hundrud-keppendur-a-sumarskakmoti-fjolnis-2025/
Rótarý-bikarana í ár hlutu þau Theodór Helgi Eiríksson Foldaskóla í eldri flokki, Dagur Sverrisson Vesturbæjarskóla í yngri flokki og Sigrún Tara Sigurðardóttir Rimaskóla í stúlknaflokki.
Eins og í fyrra vakti athygli mína hversu skemmtilega Pétur Úlfar Ernisson tefldi gegn mér í fjöltefli en Pétur er fæddur árið 2015. Eftirfarandi staða kom upp í skák okkar:

Hér á hvítur að leika 20. Bd7 og taflið er hartnær unnið eftir 20...Hd8 21. bxc3 Dxc3 22. Df2! (leikur sem ég vanmat) 22...Dxa1 23. Bb2 Dxa2 24. Bxe6 og hvítur stendur til vinnings vegna veikrar kóngsstöðu svarts. Í stað þessa lék ég 20. He3?? og því svaraði Pétur með 20...Bd4! og hafði í framhaldinu unnið tafl. Hann glutraði hins vegar þeirri vinningsstöðu niður en hann lét mig heldur betur svitna yfir skákinni og eyddi ég óhóflegum tíma í að leysa úr vandamálum stöðu minnar:

Í þessari stöðu á hvítur rakinn vinning: 28. fxg6! hxg6 29. Bh6+! Kxh6 30. Dh8+ Kg5 31. Dd8+ Rhf6 32. Da5+! og hrókurinn á e1 fellur. Mikhail Tal, fyrrverandi heimsmeistari, d. 1992, hefði verið fljótur að sjá þessa geometríu en þeim taktískum hæfileikum er ég ekki gæddur.
Þess í stað lék ég 28. b3 sem tryggir hvítum einnig unnið tafl. Sem dæmi gengur 28...Ref6 ekki upp vegna 29. Bb2 og riddarinn á f6 er leppur og hvíti hrókurinn á a1 sleppur úr prísundinni. Á meðan fjölteflinu stóð var ég óviss um lokastöðuna og þegar því var lýst yfir að fjölteflinu væri lokið bauð ég Pétri jafntefli enda hafði hann sýnt með mörgum leikjum sínum að hann sé naskur að sjá góðar hugmyndir.
Heimsókn til Munchen
Við hjónin skruppum í nokkra daga í maí til Munchen í Þýskalandi en þar býr góður vinur minn, Guðmundur Kjartansson, stórmeistari. Hann og eiginkonan hans eignuðust barn í febrúar og heimsóttum við þau. Dóttir þeirra er mikið krútt.

Laugardaginn 17. maí var haldið hraðskákmót í borginni en þýska meistaramótið hófst þar 15. maí. Við Guðmundur tókum þátt:
Ein skák í þessu hraðskákmóti olli mér hugarangri, gegn pólsku skákkonunni Klaudiu Kulon:

Ég hafði vélað peð af andstæðingi mínum en átti innan við tíu sekúndur eftir (2 sekúndur bættust við hvern leik) á meðan sú pólska hafði vel yfir mínútu eftir. Í þessari stöðu stendur hvítur til vinnings og lék ég fínum leik, 25. Ra5! Ba8 26. e3! Hd1 27. Re6?! hér gat hvítur einfaldlega leikið 27. Rxa6 með gjörunnið tafl. 27...Bb4! og hér fór ég á taugum en lék þó 28. Rxc7 Bxa5

Hér gat hvítur ennþá haft unnið tafl eftir 29. Rxa8 Hd8 30. b4! en þess í stað lék ég 29. Rxa6?? og tapaði svo skákinni. Daginn eftir tefldi Guðmundur á Fischer-Random mótið og vann það, sjá:
https://skak.is/2025/05/19/gudmundur-kjartansson-vann-fischer-random-mot-i-munchen-med-fullu-husi/
Við eiginkonan skemmtum okkur vel í Munchen og vorum meðal annars viðstödd fagnaðarlæti Bayern Munchen á Marienplatz, sunnudaginn 18. maí:

Við konan tókum þennan dag meðal annars hús á Hofbrauhaus:

Bjórgarðurinn hjá Kínverska turninum er einnig áhugaverður:
