Skák og Covid-tímabilið

Covid-19 faraldurinn var skrattakollur sem hófst á Íslandi í mars 2020 og lauk í ársbyrjun 2022. Á þessu covid-tímabili var algengt að skákiðkun færðist yfir á Netið en áhugi minn á netskák hefur jafnan verið hófstilltur.

Sumir segja þó að netskák sé framtíðin. Það kann að vera rétt. Mér leiðist hún þó svoldið. Hæfni mín til að nota músina rétt mætti vera meiri. Nettenging getur verið mismunandi. Svindl í netskák er algengt. Samt sem áður er gaman að fylgjast með bestu netskákmönnum heims tefla, svo sem eins og Hikaru Nakamura.

Á Covid-tímabilinu breytti maður aðeins vinnubrögðum sínum. Skákþjálfun á netinu var keypt og hennar notið með aðstoð fjarfundarbúnaðar. Covid-tímabilið gerði líka að verkum að maður keypti sér enn meiri aðgang að efni á síðum á borð við chessable.com. Lestur skákbóka klikkar sjaldnast heldur.

Í ágúst 2020 opnaðist gluggi í þéttu neti samkomutakmarkana að halda Íslandsmótið í skák í opnum flokki. Mótið fór fram í Álftanesi í Garðabæ og var um sterkt tíu manna mót að ræða, með 5 stórmeisturum og tveim alþjóðlegu meisturum á meðal keppenda. Minnstu munaði að ég yrði Íslandsmeistari í annað skiptið en að lokum deildi ég öðru sæti mótsins með stórmeistaranum Braga Þorfinnssyni. Góðvinur minn, Guðmundur Kjartansson, varð Íslandsmeistari.

Ljósmyndin er tekin þegar ég hélt ræðu í lokahófi mótsins.