Skák og stjórnmál - minningar frá vorinu 2022

Bútur úr grein minni, 5 ára planið, sem birt var haustið 2023 í tímaritinu Skák:

„Í febrúar 2022 tilkynnti ég framboð mitt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar sem fóru síðan fram 14. maí 2022. Á meðan prófkjörsbaráttunni stóð tefldi ég fyrir Taflfélag Reykjavíkur í seinni-hluta Íslandsmóts skákfélaga og í lokaumferðinni atti ég kappi við hollenska alþjóðlega meistarann Robert Ris. Ris þessi er allfróður um byrjanir en er ekki eins sterkur á svellinu á öðrum sviðum skáklistarinnar. Ég hóf taflið með hvítu á 1. b3 og eftir nokkra leiki var ég kominn með lakara tafl og mun verri tíma. Hægt og sígandi hins vegar batnaði staða mín og tímamunurinn varð minni og minni.

Eftir 33. leik svarts kom eftirfarandi staða upp:

Íslandsmót skákfélaga, úrvalsdeild,mars 2022, Helgi Áss Grétarsson (2467) – Robert Ris (2468)

Þótt svartur ráði yfir löngu a8-h1 skálínunni þá er peðastaða hvíts heilbrigðari og þrjú peð svarts eru veik, þ.e. þau á a6, c7 og g4. Riddarinn er einnig sveigjanlegri maður en biskupinn í stöðu sem þessari.

Lok skákarinnar urðu eftirfarandi:

34. Rd3! Bc6? 35. De2 Dc4 36. De3! Db3? 37.Rc5 (hótar m.a. a6-peðinu og De3-De6+) 37...Db1+38. Kf2 Df5 39. Kg3 Bd5 40. Df4?! og svartur gafst upp. Lokaleikur hvíts var ónákvæmur þar eð betra var að leika 40. De8+ Kg7 41. d4 og hvítur hefur unnið tafl. Lokastaðan er ekki eins ljós þar eð svartur getur mögulega skapað sér mótspil eftir 40...Dc8 41. Dxg4 De8.

Þessi sigur í lokaumferðinni var gagnlegur fyrir sveit Taflfélags Reykjavíkur og átti þátt í að landa Íslandsmeistaratitlinum fyrir félagið, þeim fyrsta í ansi langan tíma. Fyrir mig persónulega þýddu þessi úrslit einnig að á Íslandsmóti skákfélaga 2021–2022 náði ég árangri sem samsvaraði stórmeistaraáfanga (fékk 7vinninga af 9 mögulegum, árangurinn var vel yfir 2600 skákstig ásamt því að öll önnur skilyrði voru uppfyllt).

Svo í framhaldinu gekk prófkjörsbaráttan ljómandi vel og í kjölfar prófkjörsins einhenti maður sér í kosningabaráttu fyrir borgarstjórnarkosningarnar vorið 2022.“

Ljósmyndin er tekin í prófkjörsbaráttunni en með mér á myndinni er Guðmundur Kjartansson, góður vinur úr heimi skákarinnar.