Vignir Vatnar og Hannes Hlífar mætast í úrslitum Símans Invitational
Í kvöld fór fram seinna einvígið í undanúrslitum Símans Invitational en fyrir viku tryggði stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson sér sæti í úrslit mótsins með því að leggja kollega sinn Helga Ólafsson að velli, 6-5, eftir að leikar stóðu jafnir að „venjulegum leiktíma loknum“, 5-5.
Stórmeistarinn Vignir Vatnar og alþjóðlegi meistarinn Alexander Domalchuk-Jonasson tefldu í kvöld og vann Vignir örugglega, fékk fimm og hálfan vinning gegn hálfum vinningi Sasha, eins og hann er kallaður í daglegu tali.
Ein staða í fjórðu skák einvígisins í kvöld kveikti forvitni mína:

Hér hugsaði Vignir sig um í tvær mínútur eða svo en sú tímanotkun var ansi mikil í ljósi þess að tímamörkin voru 3+2. Hann lék 11. Hae1+? en Björn Ívar, annar skákskýranda stakk upp á að hvítur léki hér 11. Bxh7.
Á meðan ég horfði á útsendinguna þá reiknaði ég út afleiðingar þess bíræfna peðráns og taldi að það myndi ganga upp:
11. Bxh7! g6 12. Hae1+ Kd8 [12...Kf8 13. Bh6 mát.] 13. Re5! og svarta staðan er að hruni komin hélt ég.

Sjálfsagt hefur Vignir metið stöðuna óljósa þar eð svartur getur leikið 13...He7 en tölvan segir hins vegar að eftir 14. Rxd7 Rxd7 15. Bxg6! fxg6 16. He6! vinnur hvítur manninn til baka og hefur gjörunnið tafl. Hugmyndin að nota e6-reitinn eftir 15. Bh7-xg6 er fjarri því að vera augljós.
Alltaf gaman að fylgjast með netskákeinvígjunum í þessu móti sem haldið er í samvinnu Rafíþróttasambands Íslands og Skáksambands Íslands.
Úrslitaeinvígi Vignirs Vatnars og Hannesar Hlífars hefst kl. 18:00 næstkomandi sunnudag, 6. apríl.